Þetta
er leikdeig sem búið er til úr jello hlaupi
1
bolli hveiti
2
matskeiðar salt
2
matskeiðar Cream of tatrar
1
bolli heitt vatn
Jello
hlaup 13 oz pakki
Aðferð:
Öllu er blandað saman í stóra skál og hrært
saman þangað til allt hefur blandast vel saman.
Hellið á pönnu á lágum hita og hrærið
stanslaust í en farið varlega af því að hlaupið brennur auðveldlega
Bíðið þangað til það þykknar upp í stóran bolta
og setjið þá á bökunarpappír til kælingar.
Hnoðið með hveiti í nokkrar mínútur þegar það
hefur kólnað .
Setjið matarlit eða glimmer útí
LEIKIÐ YKKUR!
Deigið dugar í nokkrar daga sé það geymt í
loftæmdum umbúðum í kæli.
Sjá nánar hér
Þetta er slökunar krukka en hana gerði móðir
Pix fyrir hana til að fá hana eða kenna henni að slaka á. Það er nú ekki
vanþörf á fyrir marga núna þegar verið er að reyna að koma hlutunum aftur í
venjubundna rútínu eftir hátíðarnar. En alla vega hún fyllti þessa krukku með 1 matskeið af glimmerlími á móti 1 bolla af vatni, matarlit og glimmer svo á bara að hrista krukkuna og horfa á glimmerið
setjast á botninn og þannig lærir maður að róa sig niður. Ætli þetta heiti ekki að vera sultuslakur.
Þetta er frábært, get ýmindað mér að slökunarkrukkan muni geta gert gagn :) sjáumst vonandi á föstudaginn :)
ReplyDelete