05 December 2015

Innidagur


Í dag var innidagur og þá er gott að nota til baksturs ekki satt. Þegar ég baka þá fer eldhúsið á hvolf og því verða ekki birtar neinar rómatískar jólabakstursmyndir hér. En þegar bakstursilmurinn er kominn í húsið, veðrið úti bankar á gluggana þá er svo notalegt að kvekja á kertum og njóta. 
Ég bað eiginmanninn að mynda eldússkápinn i þessari fallegu birtu.


Ég fylli kúpulinn af alls konar jólakúlum sem ég hef sankað að mér í gegnum árinn en þær eru í pastellitum ásamt gylltum og silfurlituðum kúlum og svo er ég líka með rafhlöðuseríu inna í honum.


Ég spreyjaði svo jólasnjó ofan á kúpulinn og smá dass af glimmer


Ég þarfa varla að taka það fram að tertufötinn eru frá Margréti Jóns leirlistakonu.
Bílinn með jólatréinu á toppnum er úr Sirku en litli kúpulinn fékk sömu yfirhalningu og sá stóri.

kveðja Adda


25 April 2015

A4 áskorun 2015


A4 hannyrði og föndur  skoraði á nokkrar bloggara að koma og skoða úrvalið sem er í verslunum þeirra, síðan máttum við velja okkur efni til þess að vinna úr.  Við höfðum algerlega frjálsar hendur um efnisval.
Með í þessari áskorun eru 10 önnur frábær íslensk blogg.
Hér eru hin bloggin og ég hvet ykkur til þess að fylgjast með þessu frá byrjun til enda:

Síðan er náttúrulega bara málið að smella like á A4 – hannyrði og föndur, á Facebook

Ég fór í A4 og þar er sko nóg úrval af alls konar  efnivið fyrir fínar hugmyndir og það var vandi að velja úr og á endanum valdi ég mér blúndustensla



Það voru 4 stenlar í pakkanum


Ég átti glerkrukkur sem ég ákvað að prófa að stensla á


Ég límdi stensilinn á krukkuna (það er aðeins lím á þeim)


Það var ekki til neins sérstök glermálning en á málningunni frá Mörtu Stewart og á henni stendur að hana megi nota á við, gler, málm og efni þannig að ég ákvað að nota hana.
Ég bar málninguna á með kökuspaða eins og ég væri að spasla.


Svo tók ég stensilinn af og kláraði að stensla hringinn á krukkunni.


Ég í fljótfæri mínu (surprise surprise)gleymdi að taka myndir þegar ég stenslaði á stærri krukkuna



svo hér eru þær báðar tilbúnar.



 Ég vona að þetta verði aðeins til að ýta við mér að fara að blogga meira og ég er strax komin með hugmynd að nýju verkefni.



Takk kærlega fyrir mig A4 og munið svo að kíkja á hinar bloggsíðurnar sem eru með í áskoruninni.
kveðja Adda 

04 February 2015

Skógrækt

Ég er mikið fyrir alls konar pappírstré og hér er sýnishorn af nokkrum sem ég gerði fyrir jólin og ætlaði alltaf að birta en gerði ekki


Stofuglugginn 


Bókarpappírstré




Hér er hægt að sjá hvernig þetta er gert



Þetta er bók sem búið er að saga út tré



Hér getið þið séð hvernig þetta er búið til 


Pappírstré sem klippt er út úr gamalli bók saumað saman og hengt upp, sjá hér

Hver segir að pappirstré geti bara verið uppi á jólunum


kveðja Adda