Ég hef oft sett myndir á kerti t.d. á afmæli dóttur minnar þá hef ég yfirleitt sett myndir á kerti annaðhvort myndir af henni eða einhverju sem tengist afmælisþemanu. Þá var ég yfirleitt með eitthvað séstakt lím til að setja servéttur á kerti.
Hér eru Bangsimonmyndir á kertunum í eins árs afmælinu hennar Emblu (ef þið sjáið þær fremst á myndinni)
fyrir jólin prentaði ég út úr tölvunni nokkrar engla og jólamyndir og festi á kerti með límstifti.
En svo er ég búin að sjá víða á netinu alls konar aðferðir við að setja myndir á kerti til dæmis hjá Lindu á síðunni "Litlir hlutir" og hjá Helgu á síðunni "Allt er vænt..." (Endilega kíkið á þessar síður þær eru báðar að gera frábæra hluti). Ég átti nokkur kerti eftir jólin sem höfðu verið í (þó nokkrum) aðventukrönsum heimilisins og en var nóg eftir af þegar jólin voru búin. Svo að ég ákvað að gera nokkrar tilraunir við að setja myndir á kertin.
Silkipappír og prentari
Hitabyssan
Í þessa tilraun fór silkipappír sem fæst í öllum betri föndur og bókabúðum og Tiger
hitabyssa sem ég er búin að eiga í mörg ár og nota mikið með stimplunum mínum og hvít kerti.
Ég fann nokkrar gammel myndir á netinu ég fer aðalega inn á The Graphics Fairy sem er algjörlega mitt uppáhald þegar kemur að gamaldags myndum
Það eru öll kerti glæsileg í þessum kertastjökum frá Margréti Jóns en það er ekki verra að vera með kórónu
Ég valdi nokkrar myndir til að setja á kertin, þær myndir sem voru með letri speglaði ég í tölvunni .Til þess að spegla texta svo hann snúi rétt á kertinu fór ég í word og ýta á draw og valdi þar rotate or flip og svo flip horizontal og þá er myndin spegluð.
Ég klippti út silkipappír jafnstóran A4 blaði og festi hann niður á ofan og neðan við ljósritunarpappírinn með límstipti og prentaði myndirnar út á glanshliðina á pappírnum. Þá klippti ég myndina af ljósritunarpappírnum og setti hana á kertið og hitaði með hitabyssunni þar til vaxið fór að hitna og við það dökknar myndin og blotnar upp. Maður þarf bara að passa sig að hita kertið ekki of mikið en þá fer allt að kertavaxið að leka niður í stríðum straumum og kertið verður mjög hrufótt og ljótt.
Og þarna er myndin komin á kertið
þetta var fyrsta fórnarlambið og ég var full gróf á hitanum svo það fór að leka niður.
Hér er myndin sem ég notaði en ég þurfti ekkert að snúa henni
Þessi mynd sést ekki vel en hún er voða rómó
Þarna setti ég saman tvær myndir aðra af rós en undir setti ég sendibréf og það kemur svo fallega úr að mér finnst
Svo er það kórónan en það verður að vera svolítið konungslega heima hjá manni annað slagið
Ég á örugglega eftir að gera fleiri tilraunir seinna og svo á ég eftir að gera einhverjar tilraunir með það að prenta á efni en það bíður betri tíma. Ég vona að þetta hafi komið að einhverju gagni en svo verður maður bara að prófa sig áfram.kert
kveðja Adda