27 February 2013

Bakgarðurinn

Það eru margar fallegar búðir á Akureyri og ég á nokkrar uppáhalds eins og þið sem fylgist með blogginu mínu hafði ekki farið varhluta af, ein af þessum búðum er Bakgarðurinn sem staðsett er við Hólaveg á Akureyri( beint á móti Borgarbíói og hinu megin við götuna er ÁTVR). Bakgarðurinn er alveg yndislega búð  það er ekki nóg með að búðin sjálf sé fallega heldur og öllu svo fallega stillt upp heldur eru það öll skynfæri sem njóta þess að fara í heimsækja búðina. Það er yndisleg gömul tónlist spiluð og svo er góð lykt af ilmkertum og sultum sem svífur yfir öllu. 
Bakgarðurinn er í eigu sömu hjóna og eiga Jólagarðinn sem margir þekkja inni í Eyjafjarðasveit og er ein fallegasta búð landsins.


 Ég skrapp í Bakgarðinn í dag og fékk að taka nokkrar myndir á Paddann minn sem skýrir kannski misgóðar myndir.


Þarna má glitta í gamlan skenk bleikan örugglega úr RL búðinni


 Hér eru nokkrar yfirlitsmyndir úr búðinni


 tekið frá vinstri til hægri


Það eru örugglega ekki píanó í mörgum búðum sem ekki eru hljóðfæraverslanir



Þessir skemmtilegu trjádrumbar eru notaðir sem hluti af uppstillingu en eru ekki til sölu 
en flottir eru þeir engu að síður




Hér er hægt að fá yndislegar sultur og alls konar gómsætt gúmmeaði


Vörunar eru margar frá skandinavíu og ég bara stóðst ekki þennann flotta ref (sem er frá Maileg sem er dönsk hönnun) og keypti hann handa mér.... ég meina Emblu .


mig langar mikið í þennan líka (handa Emblu sko...)


Casagent eru fallegar leirvörur frá Ítalíu


Hér er til dæmis falleg ljósbleik kanna


Svart/hvíta hornið, takið eftir því að það er hægt





Þessar fallegu klemmur eru handmálaðar tréklemmur og koma í þessum krúttlegu pokum 


Þessi fallegi tindáti er náttúrulega frá kongsins Köben en ekki hvað


Ég hef lengi verið mjög hrifin af þessum fallegu kanínum sem eru líka frá Maileg og fást í ótal tengundum og stærðum



Hér eru nokkur dæmi









Afgreiðsluborðið nær eftir endilangri búðinni


Það er skreytt með girðingu að framan frábær hugmynd


þarna glittir í búðarkassann sem er falinn á bak við háu girðinguna frábær lausn og hér er til nóg af fallegum borðum og blúndum


Páskaskrauti er að renna inn í búðina um þessar mundir


Þetta eru pappírsegg sem fást í ýmsum litum og tegundum 


Ég veit ekki hvort það sést á myndinni en þessi egg eru ljósbleik og dröppuð handmáluð frá Slóveníu alveg dásamlega falleg (mér var hugsa til þín Kristín mín)


Handmáluð egg frá Slóveníu


Brún egg með ljósum tónum


Krúttleg ljós blá egg úr pappír sem setja má eitthvað skemmtilegt inn í fást einnig í gulu og bleiku


Hér er hægt að fá gamaldags hóstamixtúru talsvert fallegri flöskur en maður fær úti í apóteki


H C Andersen te fæst að sjálfsögðu í Bakgarðinum



Casagent eru leirvörur frá Ítalíu sem fást í fallegum pastel litum





Mandarínukassi sem eingöngu er skreyttur með einni blúndu en er alveg að virka


Ótrúlega flottur bakki


 Eru þetta ekki yndislegir litir



Í bakgarðinu fæst ýmislegt góðgæti eins og ýmsar sultur, sænskt hrökkbrauð, handgerður brjóstsykur, alls konar söft og fleira.







Má ekki bjóða ykkur maregnstoppa eða englakossa



Ótrúlegt úrval af alls konar sultum, 


og það er allt sett svo fallega fram


Súkkulaði á skeið, bara að hita mjólk og setja ofaní og það ertu komin með þetta fína kakó


 Hér er til mikið af fallegum viskastykkjum, ofnum löberum og dúkum


Fallega skreytt með eldiviðarstöflum


Í Bakgarðinum má finna mikið úrval af allskonar vírakörfum og hillum


Ég veit ég veit þetta eru alltof margar myndir en það er bara endalaust fallegt í Bakgarðinum.


kveðja Adda


















9 comments:

  1. Ohhh....elska þessa búð og fer alltaf í hana þegar ég ferð norður....sem er by the way allt of langt síðan ég hef gert !! Endilega segðu okkur frá fleiri gersemum á Akureyri :-)

    kv
    Kristín Vald

    ReplyDelete
    Replies
    1. já hún er algjört yndi og þú þarft endilega að koma norður. Ég kem með fleiri flottar búðir seinna.

      Delete
  2. Úffff.....vissi ekki einu sinni af þessari :)

    Takk fyrir þetta Adda min.....eins og ég þyrfti að fá enn eina ástæðu til þess að koma norður!

    ReplyDelete
    Replies
    1. þá er bara að skella sér norður Dossa mín við Kristín tökum vel á móti þér

      Delete
  3. Kíki alltaf í hana þegar ég er fyrir norðan...alveg yndisleg :)
    kv Guðbjörg

    ReplyDelete
  4. óóó,ahhh og úúú, hvað þetta er allt fallegt!!!

    ReplyDelete
  5. Oooooo ég elska þessa búð svo mikið. Fer alltaf þangað þegar ég kem norður, sem er allt allt of sjaldan. Fæ reyndar alltaf valkvíðakast þarna inni, langar í ALLT. Spurning hvort það sé hægt að láta senda sér fínerí í höfuðborgina?
    Kveðja, Svala

    ReplyDelete
    Replies
    1. Það er örygglega ekkert má að senda suður vest að þau eru ekki með heimasíðu;(

      Delete
  6. hej
    þetta lýtur út fyrir að vera spennandi búð, væri gaman að líkja í hana ef maður verður einhvertíma svo heppin að komast til Akureyrar, geri ráð fyrir að búðin sé þar.
    Flott blogg hér hjá þér !
    Kveðja frá Köben !
    Diana

    ReplyDelete