28 May 2012
15 May 2012
Nokkur smáatriði í barnaherberginu
Þegar ég fjallaði um barnaherbergið hennar Emblu hér voru nokkur smáatriði sem ég gleymdi en ætlaði alltaf að bæta við og hér koma þau.
Ég gerði þessa stafrófsmynd og setta gjafapappír á bakvið. Ég hef gefið nokkrar svona myndir í afmælisgjafir með mismunandi bakgrunni.
Hér er myndinn á veggnum hjá Emblu
Ég er svo hrifin af þessum uglupúðum frá The owl factory
Embla vildi rauða uglu af því að það er uppáhalds liturinn hennar
Ég keypti þessa hillu í Söstrene Grene og málaði hana hvíta og setti gjafapappír innan í hólfin.
Hún er fínnt heimili fyrir hristihausana ( Littlest Pet shop) sem smá saman fjölgar á heimilinu
Froskurinn
Blómakisa
Eldgamall spegill sem ég setti gamlar glansmyndir á fyrir um 13 árum síðan
Nærmynd
Hér er svo nýjasta djásnið í baranaherbergið að vísu er hann í stofunni núna því allir vilja njóta hans, hann er svo mikið krútt.
kveðja Adda
10 May 2012
Pip studio
Ég er að safna (meðal annars) leirtaui frá Pip studio í Hollandi. Ég get ekki ákveðið mig hvort mér finnst fallegra það bleika eða bláa svo ég safna bara bæði bláu og bleiku og blanda því saman ásamt hvíta fallegu leirmununum sem ég á frá Margréti Jónsdóttur leirlistakonu (ég kem betur að henni í öðrum pósti seinna). Blómabúð Akureyrar og Borð fyrir tvo í Reykjavík selja Pip vörunar.
en nú á ég orðið nokkra muni og svo bættust....
þessir fallegu félagar í safnið nú í maí þegar ég átti afmæli
hluti af skálasafninu
könnur
og fleiri könnur
Þessar könnur nota ég ekki engöngu til að drekka úr þeim heldur nota ég þær líka undir föndur og penna o.fl.
Þetta dýrindi tertufat fékk ég í afmælisgjöf í fyrra
Það er hægt að raða þessu svo skemmtilega upp
og maður á aldrei nóg af skálum
þær verða nú ekkert ljótari könnurnar við það að tilla sér á tær
Þegar maður er með svona fallega hluti fyrir augunum þá er ekki hægt annað að gleðjast og fagna vorinu hvernig sem spáin er.
Vonandi eigið þið blómstrandi daga framundan
kveðja Adda
06 May 2012
Útgáfuteiti
Síðustu vikur hafa verið mjög annasamar hjá okkur hjónum og fimmtudagurinn síðasti var vægast sagt spennuþrunginn. þá var Þórgnýr maðurinn minn í opnuviðtali í Akureyri vikublað og það má sjá hér . Svo var heimili okkar í Hús og híbýli en það verður að kaupa í búð til að sjá fínheitinn. Þannig að það mætti halda að við værum athyglissjúk þessa dagana;)
Hér er síða Hús og híbýla á Facebook.
kveðja Adda
01 May 2012
1. maí
Innilega til hamingju með daginn kæru landsmenn
Í tilefni dagsins var flaggað á þessu heimili
Sól og blíða og gróðurinn að lifna við.
Ég vona að þið eigið líka fínan og fallegan dag
kveðja Adda
Subscribe to:
Posts (Atom)