Baðherbergið á efri hæðinni er pínulítið og hefur lengi mætt afgangi. Þessi veggur var þakinn speglaflísum sem eru búinar að fara mjög mikið í taugarnar á mér síðan við fluttum inni í húsið. Við drifum loksins í því að rífa þær niður en ætluðum ekki að kosta miklu til að lífga aðeins upp á herbergið.

Svona leit þetta út þegar búið var að rífa niður speglaflísarnar

Ég keypti þessa lugt í Europrise fyrir jólin í fyrra og ætlaði að setja hana út fyrir útikerti en svo tímdi ég því ekki afþví að mér finnst hún svo flott inni
Gamalt þvottabretti sem ég á og svo keypti ég kassana í
Sirku en þeir eru góðir undir allt draslið sem safnast alltaf upp hjá manni.
Við eigum eftir að mála gólfið en það á að verða svargrátt á litinn

Ég var búin að velta mikið fyrir mér hvað ég ætti að setja á vegginn, snaga, spegla eða eitthvað annað en þá rakst ég á þessa flottu spegla
Speglana fékk í í Blómaval á Akureyri ég var svo heppin að það var 25% afsláttur af öllu í Blómaval þegar ég keypti þá
Það er ekki auðvelt að mynda spegla og ég er langt frá því að vera góður ljósmyndari
Hringlótti spegillinn


Svona lítur þetta út núna en ég er ekki alveg búin ennþá

þessar skemmtilegu körfur eru úr S
irku og fást í nokkrum litum, ég fékk mér líka svona bleikar á baðherbergið niðri

Ég keyti plastblúndu í Blómabúð Akureyrar til að lífga aðeins upp á hillurnar
Ég set inn fleiri myndir þegar ég verð búin að mála gólfið
kveðja Adda