31 May 2011
Ný bók
29 May 2011
Ponsjó og hálskragar
Þetta er mitt ponsjó yndislega mjúk og dásamleg flík




Þessi er ljósbrúnn með mjúku skinni
Þessi er svona steingrár með grábrúnu kögri og blúndum og pallíettum.
Allar þessar myndir fékk ég á Facebook síðu Sirku
kveðja Adda
21 May 2011
20 May 2011
í köku skapi
Ég var að skoða bloggið hennar Stínu Sæm þar sem hún hefur fundið svo falleg "möffins" eða "bolla"kökuform og standa. Ég smitaðist af kökunum en ég nenni ekki að baka núna svo ég ég set bara inn kökumyndir í staðin.
09 May 2011
skór og aftur skór
01 May 2011
Hjólaborð
Ég er búin að eiga svona hjólaborð úr IKEA í mörg ár og lakkaði það á sínum tíma með örlitlum viðarlit. Í gegnum árin hafði lakkið gulnað nokkuð og ég var orðin leið á þeim lit. Ég ákvað því að mála borðið og að sjálfsögðu gleymdi ég að taka mynd af borðinu áður en ég byrjaði svo ég notast bara við þessa frá IKEA.
Ég málaði borðið 3 umferðir með hvítum grunni og svo málaði ég með Kalkmálningu með gráum lit sem heitir Lute secco á borðplötuna og pússaði svo allt saman aðeins.
Ég á svo eftir að lakka yfir allt saman.
Ég er frekar lélegur myndatökumaður en þetta verður að duga að sinni. Nú er bara að taka næsta hlut fyrir en það kemur í ljós hvað það verður og hvenær
kveðja Adda