Um síðustu helgi fórum við hjónakornin í brúðkaup á Siglufirði hjá Þórgunni og Jóni Inga en Jón Ingi er systursonur Þórgnýs mannsins míns
Brúkaupið eða giftinginn sjálf fór fram í skógræktini í Siglufirði í blíðu og fallegu veðri eins og athöfnin sjálf.
Þórgnýr tók þessa mynd af brúðhjónunum og Helenu Rut dóttur þeirra
En þegar maður fer í brúðkaup þá þarf maður að finna brúðagjöf við hæfi og þar sem brúðhjóin búa erlendis þá var ákveðið að syskini Þórgnýs og börn þeirra leggðum saman í peningagjöf. Mér leiðist mjög að gefa peninga í umslagi og engan pakka svo ég fann notaða bók um Flóru Íslands oft hægt að fá fínar notaðar bækur í Fjölsmiðjunni eða í Góða hirðinum. Ég skar út nokkrar góðar blaðsíður þannig að peningarnir kæmust fyrir.
Gjöfin er við fyrstu sýn bókin en í henni leynist svo annað og meira.
Svo pakkaði ég bókinni og notaði í til þess bút af fallegtu veggfóðri því ég fann eingan pappír í bænum sem mér fannst nógu fallegur og ekki með miklu mynstri.
Ég bjó svo til hvíta Bóndarós (pom pom´s) og saumaði hjarta með nöfnum brúðhjónanna á og setti á pakkann og þá leit þetta svona út.
Mér langaði til að búa sjálf til brúðarkortið og eftir mikla leit fann ég hugmyndina af brúðarkortinu á netinu
og var bara nokkuð sátt með útkomuna
Hér eru brúðhjónin nýgiftu og Helena Rut dóttir þeirra
Mynd: Þórgnýr Dýrfjörð
Brúarvagninn
Mynd: Þórgnýr Dýrfjörð
Veislann var haldinn í Bátahúsinu á Siglufirði og var það stórkostleg umgjörð um þetta fallega brúðkaup.
Háborðið var um borð í stærsta bátnum á safninu
Mynd: Þórgnýr Dýrfjörð
Brúðhjóninn skera brúðartertuna
Mynd: Þórgnýr Dýrfjörð
Mynd af okkur hjónunum en Þórgnýr hafði það starf undir höndum að mynda alla veislugestina með þennann ramma og verða myndirnar notaðar sem gestabók.
Hann tók samt ekki þessa mynd en það gerði Gauti Grétarsson
Takk fyrir frábærann dag kæru brúðhjón þið eruð dásamleg.
Kveðja Adda
Takk fyrir frábært blogg
ReplyDeleteOfsalega fallegt, pakki og kort!
ReplyDeletekveðja,
Þorbjörg.
Greinilega vel heppnaðu brúðkaup! Kortið og pakkinn sérlega falleg!
ReplyDeleteFlott hjá þér snillingurinn minn og skemmtilegar myndir, gaman að sjá :)
ReplyDelete