15 December 2013

Jólapakkar

Mér finnst mjög gaman að pakka inn jólagjöfunum og get dundað mér lengi við það á stofugólfinu hjá mér. Í ára var ég að dunda mér við að gera ballerínur út pappa, þetta tók að vísu mun lengri tíma en ég gerði ráð fyrir í upphafi. Ég mjög lengi að finna réttu ballerínurnar það tók mig nokkur langann tíma að safna að mér flottum ballerínum bæri dúkkulísum og vintage og svo finnst mér svo gaman að gera ýmsar útfærslur mér leiðist að gera sama hlutinn oft.


Sumar notaði ég sem pakkaskraut á jólagjafir





en aðrar er ég að selja í gegnum síðuna mína "Festar og fallegt skart"


En svo fannst mér ég yrði þá að setja eitthvað á jólapakkana fyrir drengina 


Ég keypti mér fyrir jólin bókina Vintergleder frá Tilda sem ég fékk í A4



Í henni er meðal annars þessir sætu vetrar jólasveinar


Svo ég skellti í nokkra til þess að skreyta með pakk og kannski hengja einhverja þeirra upp líka


Svona líta þeir út


og að sjálfsögðu er enginn eins


Það má nota þá til að skreyta ýmislegt

kveðja Adda







1 comment:

  1. Fínar skreytingar hjá þér og ég kannast við þetta að vilja ekki gera sama hlutinn aftur og aftur. Eitt árið í jólakortagerðinni hjá okkur vinkonunum þá var hún með eina gerð og ég með aðeins fleiri. Ávallt skemmtilegt að líta við hjá síðunni hjá þér. Ég kíki regulega en er alltof löt við að skilja eftir mig fótspor.

    ReplyDelete