Sveinbjörg Hallgrímsdóttir er listamaður á Akureyri sem í mörg ár hefur gert ótrúlega fallegar grafík myndir sjá hér. Hún sækir mikið af myndefni sínu í íslenska náttúru. Nú er hún farin að láta framleiða ýmsa muni eftir myndunum sínum. Sveinbjörg starfrækir vinnuaðstöðu og sýningaraðstöðu í Gallerí Svartfugl og Hvítspóa á Akureyri ásamt Önnu Gunnarsdóttur texttíllistakonu. Hægt er að nálgast munina hennar Sveinbjargar víða m.a. í Epal. Ég mæli með að þið lítið í kringum ykkur eftir þessu fallegu hlutum.
Járnkertastjaki verður hægt að fá einhverntímann í þessum mánuði
Löberar úr lérefti og bómull og það eru tvær gerðir af mynstri, annað er grenikrans og er 160 x 53 cm og hitt mynstrið heitir garðveisla og er 130 x 38 cm
Bakkarnir koma í tremur gerðum og eru ú skandínavísku birki
Grenikrans löber
Hér er betri mynd af dúkunum
Það er einnig hægt að fá tvær tegundir af serviéttum frá Sveinbjörgu
Það er einnig hægt að fá tvær tegundir af serviéttum frá Sveinbjörgu
Plexikransar bæði til glærir og mattir og einnig má fá plexihjörtu í rauðu og glæru
Sandblástursfilmurnar frá Sveinbjörgu er hægt að fá með ýmsum munstrum og gerðum. Ég er með svona krans í litlum eldhúsglugga hjá mér en þessi mynd er eins og allar hinar fengin á heimasíðunni Svartfugl.is
Hér er dæmi um hvernig hægt er að nota plastfilmur til að skreyta glugga
myndirnar eru fengnar á heimasíðunni svartfugl.is
kveðja Adda
No comments:
Post a Comment