Mig vantaði svo eitthvað fallegt utan um hjörtun sem ég er að gera og loksins datt ég ofan á hugmyndi.
Ég átti nokkkra brúna bréfpoka (eins og maður fær í Ríkinu) og klippti þá í tvennt og límdi saman botninn á öðrum pokanum og var þá komin með tvo poka.
Síðan límdi ég pokann fastan við A4 blað og prentaði út mynd á hann með prentaranum mínum
Ég fann fullt að gamaldags myndum á Graphics Fairy
Hér er gamaldags fuglamynd
Ég keypti mér svona blúnduskera í fyrra og er búin að vera að nota hann til ýmsa verka
En ég sem sagt notaði blúnduskerann til þess að klippa ofan af pokunum
og þá kemur svona fallegt munstur
sem sést betur hér
Hér er hjata á leið ofan í pokann sinn
Ég er ótrúlega ánægð með þessa lausn hvað finnst ykkur?
Svo er það nýjasta nýtt kertaluktir með gamaldags myndum
já það er alltof lítill tími miða við allar hugmyndirnar sem ég þarf að framkvæma kannist þið við það?
kveðja Adda
Pokarnir eru ÆÐISLEGIR! Bara fallegir!
ReplyDeleteÞessir pokar eru mjög fallegir. Hef mikið notað skreytta brúna poka og reyndar líka hvíta undir jólagjafir. Verð greinilega að fá mér svona fallegan blúnduskera, bíður upp á mikla möguleika :) Alltaf gaman að skoða bloggið þitt :)
ReplyDeleteSnilldarflottir pokar Adda!
ReplyDeleteÞetta er alveg dásamlega fallegt hjá þér!!
ReplyDeleteVá, ofsalega fallegt allt saman! Kveðja, Þorbjörg (laumulesari og mikill aðdáandi)
ReplyDeleteHvar fékkstu blúnduskeran ?
ReplyDelete