Ég keypti þessar fallegu skálar í Borð fyrir tvo á Laugaveginum Reykjavík
þær eru til í nokkrum litum og stærðum einnig eru til diskar og glös í þessu merki sem heitir Pip studio og er frá Amsterdam hér getið þið séð heimasíðuna þeirra. Ég ætla seinna að fá mér fleiri svona rómantískar skálar.
Svona er inn í fuglaskálinni
Fuglaskálinn að utan
blómaskálinn að innan
Blómaskálinn að utan
gamaldags blómamyndir
falleg móðurmynd
Þessi eftirprentun af Gullfossi að ég held var til á mörgum heimilum þegar ég var að alast upp en hún er merkt GÞ (að ég held) /-64.
Ef einhver veit hvað sú skammstöfun þýðir þá má hann láta mig vita.
Mér finnst þessi mynd æðisleg hún er svo gammel og flott.
Allar þessar myndir fékk ég í "Góða hirðinum" fyrir lítinn pening.
Ég á að vísu eftir að finna þeim stað en held að það væri voða flott að raða þeim saman á vegg.
kveðja Adda
og pappír og kort frá PIP fæst í Sirku. En má ég spyrja hvað kostuðu þessar undurfallegu skálar? kv.E
ReplyDeleteÞessar skálar eru BARA flottar. Er búin að kíkja á heimasíðuna og væri líka alveg til í að eiga bollana, kaffið mitt yrði pottþétt betra úr þeim heldur en þeim sem ég á núna.
ReplyDeleteTakk fyrir skemmtilegt blogg
Kveðja Kolbrún
minni skálin er 12 cm og kostar ca. 2300 kr
ReplyDeletestærri skálin er 15 cm og kostar að mig minnir 2900 kr
kveðja Adda