Litla stelpan okkar er að stækka og rúmið hennar var að verða full lítið fyrir hana. Þá voru góð ráð dýr. Á efstu hæðini í litla piparköku húsinu okkar eru 3 svefnherbergi, eitt hefur verið notað sem gestaherbergi og svo er hjónaherbergi og barnaherbergi. Í gestaherberginu er kósíhorn sem ég hef áður fjallaði um
hér.
Embla ákvað að selja rúmið sitt, skipta um herbergi og sofa bara í kósískotinu, þetta kostað i nokkrar breytingar sem enn er ekki séð fyrir endan á.
Hérna eru myndir frá gamla herberginu hennar Emblu
Séð inn í nýja herbergið
Kommóðan hennar Emblu komin á nýjan stað
Minnistafla sem ég bjó til úr gamalli korktöflu og sjá má
hér
Embla fékk gamla stólinn sem ég gerði upp og sjá má nánar
hér
Ég fékk þessi pappahús í Söstrene Grene
Borð og tveir stólar ssem ég fékk á sínum tíma í IKEA og málaði Mottan er úr Rúmfó
Við erum ekki alveg búin að gera upp við okkur hvort við höldum eða seljum stólana og borðið en til að byrja með verður þetta svona.
Vefurnar fékk ég á sínum tíma í Sirku
Gamall spegill og hilla sem ég fékk fyrir mörgum árum en var aldrei búin að finna rétta staðinn fyrir
Þarn geymir daman nú snyrtidótið sitt
Gardínur eiga eftir að fara upp fyrir utan myrkrartjöldin
Þarna sést skápur sem er innbyggður en ég er að hugsa um að setja skápahurðir fyrir sem ég ætla að að svo mála með krítartöflumálningu. Þarna er líka búrið hans Lúlla sem er naggrísinn hennar Emblu
Gamallt snyrtiborð fékk ég fyrir ca 25 árum, ég málaði það með afgangnum af málningu sem ég setti á útidyrnar hjá mér fyrir nokkrum árum. Það á eftir að mála stólinn en hann fékk ég ásamt öðrum eins fyrir nokkrum árum í Dæli á flóamarkaði
Hér sést innbyggða hillan betur
Skrifborðið en höldurnar er frá Margréti Jóns leirlistakonu.
Þarna sést inn í kósískotið.
Eldavél sem ég bjó til úr gömlu náttborði sjá
hér
Kósí kósí kósí
Það er mjög notalegt að lesa þarna inni
Hér eru stafrófsmyndir sem ég fann á netinu.
Ég fann líka fallegar myndirsem á netinu sem ég prentaði út og límdi innaní.
Skotið er líka skreytt með seríu og litlum veifum.
Nú þurftum við að setja hilluna upp á hlið en í hinu herberginu hennar lá hún þversum.
Smá hilluskraut
Ég bjó til þessa nafnamynd
Svona lítur þá herbergið út enn sem komið er;)
kveðja Adda