Ég var búin að eiga nokkur frauðplastegg í poka í 2-3 ár og aldrei komist í það að skreyta þau.
Þegar ég var að leita að páskaskrautinu inni í geymslu þá fann ég þessi egg og við Embla dóttir mín ákváðum að föndra aðeins.
Ég átti nokkra pastelliti og svo keypti ég glimmer í Föndur og við fórum að mála
Þetta var í raun mjög einfalt föndur, við stungum bara grillpinna í eggin, máluðum þau í pastellitum og settu svo glimmer á blauta málninguna og vollla ..........hræðilega einfalt.
Hér eru eggin tilbúin
Til að byrja með eru þau saman í skál en svo sjáum við til hvar þau enda.
Skálin er frá Margréti Jóns leirlistakonu
Þessa kanínu smíðaði ég á country árunum og hún er ein af fáum hlutum frá þeim árum sem fær að vera uppi en aðeins um páskana.
kveðja Adda
Þetta er bara yndisleg, og svo líka gaman saman hjá ykkur mæðgum, sem er bónus :)
ReplyDeleteÆðislega fallegt hjá ykkur, ég bið kærlega að heilsa heimasætunni :)
ReplyDeleteFallegt og fljótlegt, takk fyrir þessa hugmynd :)
ReplyDelete