03 August 2012

Sumarblogg partý

Ég er búin að vera á leiðinni í bloggpartý hjá Stínu Sæm sem er með bloggsíðuna Svo margt fallegt 
en einhvern veginn aldrei komist á leiðarenda. Nú ætla ég að bæta úr þessu og setja inn nokkrar myndir af pallinum hjá mér, sumar eru síðan í fyrra en aðrar frá þessu yndislega sumri sem við höfum notið í ár.


Kökuföt og glerkúplar úti að viðra sig




Alltaf með nokkra bakka í gangi í einu sem ég drösla út og inn eftir veðri


Það verður allt svo fallegt þegar það er búið að færa það upp á kökufat og setja glerkúpul yfir finnst ykkur það ekki?


Hjarta í sumarskapi


Tvö sumarhjörtu


Blikkbeljan er sjaldan langt undan en innihaldið er yfirleitt hvítvín. Kassann fékk ég í Sirku og hann er algjör snilld heldur mjög vel köldu.


Bláu gömlu kaffikönnuna fengu mamma og pabbi í brúðargjöf og hún er í mkilu uppáhaldi hjá mér.


Smá kósi skot sem er nú frekar skuggsælt og ekki fyrir blóm eða plöntur


Þessi gamli baststóll var orðin alveg litlaus og ljótur en ég spreyjaði hann í möttum svart/gráum lit


Gullregnið sem ég keypti í Blómaval fyrir 3 árum síðan og er á leiðinni á nýjan stað út í garði það lifir víst ekki í svona litlum potti endalaust


Má bjóða þér kaffi? Ég á margar kaffikönnur og bolla þó svo að ég drekki ekki kaffi sjálf.


 Kaffikönur og bollar geta líka verið fínir blómavasar


Gömul garðkanna sem ég málaði og setti blómamynd af sérvíettu og ofan í henni eru gerfirósir og sería



Aðalhæindastóll húsmóðurinnar hér hafa margir reifarar verið lesnir


Húsið að framan


Þennan bekk málaði ég fyrir nokkrum árum og þarf greinilega að fara að endurtaka verkið


Hjartafánina er komin upp enda brosa allir með hjartanum um verslunarmannahelgina á Akureyri (séð úr garði nágrannana)


Svona leit pallurinn út rétt í þessu þegar ég og Embla dóttir mín vorum búinar að sóla okkur í heitapottinum okkar (pottur á pallinn fyrir aðeins 3500 krónur í Toy´s rus) við mæðgurnar eru búnar að nota hann mikið bæði í fyrra og svo ennþá meira í sumar.


Fánarnir eru úr Tiger

Bestu sumarkveðjur til ykkar og passiði bara að njóta síðsumarsins líka þó svo að það sé komin ágúst.

kveðja Adda


6 comments:

  1. afskaplega notalegt og smart hjá þér :-)

    ReplyDelete
  2. Alveg hreint æðislega æðislegt!
    Þær hitta mig beint í hjartastað þessar myndir, elska hverja einustu :)!!

    Góða og gleðilega helgi Adda mín og fjölskylda, njótið alls þessa frábæra sem Akureyri hefur upp á að bjóða :)

    kk Kikka

    ReplyDelete
  3. voðalega er alltaf kósý hjá þér ;-)

    ReplyDelete
  4. Mikið er þetta yndislegt hjá þér/ykkur :)
    Dásamlega kósý og notó!

    ReplyDelete
  5. Mikið er þetta fallegt og rómantískt hjá þér :-)

    ReplyDelete
  6. takk kærlega fyrir stúlkur þetta er verk sem er í stanslausri þróun
    kveðja Adda

    ReplyDelete