07 August 2011

Helgarverkefnin

Andinn kom loksins yfir mig um helgina og ég tók aðeins til hendini. Vinnuherbergið hjá mér er búið að líta út eins og ruslakompa í alltof langan tíma og það var ekki hægt með nokkru móti að vera þar inni. Ég hef lengi ætlað að mála furuhillu sem var keypt fyrir löngu í Rúmfatalagernum en ekki komið mér að því fyrr en nú. Ég málaði hana hvíta og setti gjafapappír úr IKEA (átti ekki veggfóður sem passaði) inn í bakið. Að sjálfsögðu gleymdi ég að taka fyrir myndir;( en hér sjáið þið alla vega eftir myndir.

Svona lítur hillan út núna þegar búið er að endurraða í hana

Ég nota mikið litlar töskur sem ég kaupi í Tiger undir perlur, borða og ýmislegt sem ég nota til skartgripagerðar. Það er svo gaman að því að það koma alltaf reglulega nýjar tegundir af töskum því það er svo flott að hafa þær í mörgum mismunandi litum.

herbergið eins og það lítur út núna en ég á eftir að gera ýmislegt fleira eins og að mála herbergið og veggfóðra einn vegg. Svo ætla ég að mála píanóið svart og flytja það inn í stofu í haust

Mig vantar alltaf kassa undir allt draslið sem ég sanka að mér og því var upplagt að breyta þessum skókössum í fallega hirslur undir pappíra og litasafn heimilisins.

Þessa stóla keyptum við í IKEA fyrir yfir 20 árum síðan og ég er búin að sauma nokkrum sinnum utan um þá og mála á þeim fæturnar. Stólarnir eru orðnir frekar lúnir og það var á þeim hvítt áklæði sem var orðið blettótt og ljótt. Ég nennti ekki að sauma utan um þá einu sinni enn svo ég keypti gráa taumálningum frá Sveinu Björk textílhönnuði og málaði þá gráa. Þessi málning er algjör snild og með henni má lappa upp á húsgögn sem maður hefði að öðrum kost þurft að fara með til bólstrara.

Svona líta þeir út eftir málun og nú má nota þá aðeins lengur.

Það liggur mjög þröngur og brattur stígi upp á efri hæðina sem leit svona út fyrir helgi...
...en lítur svona út núna

nærmynd af tröppunum.

Ég er mjög ánægð með útkomuna

kveðja adda


6 comments:

  1. Þú ert nú meiri snillingurinn Adda

    ReplyDelete
  2. Vúhúú hér er líf og fjör Adda, flottar breytingar! Tvær nákvæmlega eins hillur bíða málunar hér, það er bara ekki hægt að hafa þær eins og þær eru ;)

    ReplyDelete
  3. flottar breytingar, það er svo gaman að geta gefið gamla dótinu nýtt líf, og svo hef ég verið að leita að svona taumálningu, er með borðstofustóla sem bráðvantar málningar vinnu og eru með striga setu, en það virðist enginn kannast við þessa málningu. Þusund þakkir fyrir það.
    ps finst litlu töskurnar æði.
    kv stína

    ReplyDelete
  4. Rosalega flott hjá þér - sérstaklega hrifin af tröppunum og mála áklæðinu! Ég held svei mér þá að þú eigir jafn mikið af Tiger-töskunum og við hérna heima :)

    ReplyDelete
  5. þakka ykkur fyrir stúlkur maður verður alltaf svo ánægður með sig þegar maður hefur aðeins breytt eða gert eittvað smá fyrir heimiliðm það er næstum eins og að flytja. Maður á aldrei of mikið af tiger-töskum þær eru til allra hluta nytsamlegar

    ReplyDelete
  6. rosalega flott allt :)

    ReplyDelete