27 April 2011

Tertuföt

Ég hef lengi verið veik fyrir fallegum kökudiskum og tertufötum og ég hef sérstakt dálæti á tretufötum sem eru á fæti. Mér finnst það koma svo fallega út á borði þegar maður raðar mismunandi kökum á mis há tertuföt. Hér eru nokkur sýnishorn.




Þesssi fallegu tertuföt eru til í mörgum stærðum og gerðum og fást hér



Hér fást þessi föt.


og þessi eru héðan



Tertufötin mín



Uppáhalds fatið mitt eftir Margréti Jónsdóttur leirlistkonu á Akureyri það er allt svo draumkennt og yndislegt sem hún gerir



Tertufat á fæti frá Pip studio Hollandi. Þessar vörur eru í sérstöku uppáhaldi hjá mér og fást í Borð fyrir tvo í Reykjavík og Blómabúð Akureyrar og Blómabúðinn Akur (Akureyri). Svona fat er á óskalistanum hjá mér.



Er þetta ekki fallegt!

kveðja Adda

4 comments:

  1. vá hvað ég er þér hjartanlega sammála, jafnvel það að setja búnkt af bönunum á disk á fæti á eldhúsborðið gerir banana fallega, svo við tölum nú ekki um kökur og cupkaces. flottar myndir og mikið ofboðslega átt þú marga fallega diska á fæti.
    kv Stína

    ReplyDelete
  2. hæ Stína
    það er alveg undravert hvað einföldustu hlutir og jafnvel misheppnaðar kökur breytast í hreinust listaverk sé þeim fyrirkomið á fallegu tertufati. Maður getur lengi á sig blómum bætt ekki satt.
    kveðja Adda

    ReplyDelete
  3. Þjáist líka af svona disk-á-fæti-veiki :)

    ReplyDelete
  4. Hvar ætli þessi fallegu tertuföt fáist í dag?

    ReplyDelete