26 April 2010

Borðstofuhúsgögnin



Svona leit borðastofuborðið út áður en við byrjuðum. Við vorum lengi búin að ætla að taka borðstofuhúsgögnin í gegn. Sessurnar á stólunum voru orðnar mjög signar og ómögulegt að sitja á þeim, borðið var líka illa farið með blettum sem ekki náðust af og fleira.

Borðið

Stólarnir fyrir breytingu

Þarna er Þórgnýr búin að taka sessurna af stólunum í sundur og er að strekkja strigaborðana áður en hann skipti um svamp og setti á nýtt áklæði

Stóll í vinnsu búið að pússa og grunna og verið að kalkmála.
Við ákváðum að nota Kalkliti frá Auði Skúla, en mig hafið lengi langað til að prófa þá.
Við fórum og hittum Auði og fengum fínar ráðleggingar hjá henni og manni hennar Hirti, þau voru alveg frábær og með einstaka þjónustu. Hér getið þið sé fyrirtæki þeirra Kalkliti, ég mæli með þeim. Liturinn sem við völdum er frekar nýr hjá þeim og heitir Gritti. Kalklitirnir eru líka seldir í Bykó.

Strípaður stóll fyrir málningu

hér er búið að kalkmála stólinn

stólar í miðju ferlinu


Skrautið á borðfótunum eftir að blaðsilfur hefur verið sett á þá og lakkaði yfir


Skraut á miðju borðinu, einnig með blaðsilfur

borðstofan tilbúin!

nánari mynd af stól eftir breytingu,
ég setti blaðsilfur á skrautið á stólunum og lakkaði yfir

Svona líta stólarnir út núna.
Ég var lengi að finna rétta áklæðið því það er ekki allt sem gengur við svona gráan lit


Nærmynd af sessunni

Allt tilbúið og flott, þá mega gestirnir bara fara að koma

Kveðja Adda

21 April 2010

Innskotsborð

Innskotsborðin fyrir breytingu

Ég að pússaði, grunnaði og málaði borðin og svo setti ég frekar þykkan gjafapappír ofan á borðplöturnar með veggfóðurslími og lakkaði yfir.

Volla! þetta er útkoman, nýju innskotsborðin tilbúin til notkunar rétt mátulega fyrir
borgaralegu ferminguna hans Bjarma.

Kveðja Adda

17 April 2010

Flottar tröppur

Hér er stiginn notaður sem bókahillur í leiðinni, ótrúlega flott

Hér er flott notkun á veggfóðri sem er frá Ferm og Sirka er að selja veggfóður og fleira frá því fyrirtæki.

kveðja Adda

03 April 2010

Meira páskaföndur

Þetta páskaskraut er hægt að fá frítt hér á þessari síðu Spagat blogg
þá er bara að prenta, klippa út og hengja á páskagreinina.

Gleðilega páska!

Kveðja Adda

02 April 2010

Páskaföndur

Páskakanínur úr silkipappír

pappírsfugl

Lituð egg

Egg sem búið er að setja fallegan pappír utan um

Skemmtileg skreyting á páskaborðið

Hæna og ungi úr pappír
Allar þessar myndir hér að ofan fékk ég á þessari síðu Martha Stewart
þar er fullt af skemmtilegu páskaföndri


Þessar myndir er hægt að fá frítt á þessari síðu www.indigoblue.tyepad.com

kveðja Adda