Ég var svo heppin að mér var boðið í skírn í júníbyrjun hjá dóttur Báru vinnkonu minnar og fékk leyfi til að föndra aðeins fyrir veisluna. Að sjálfsögðu gleymdi ég að mynda herlegheitin en fékk þessar myndri lánaðar
hjá öðrum.
Mynd: Elías Björnsson
Jónas Ari heitir drengurinn og er ótrúlegt þægt og meðfærilegt barn og svo er hann alíka lgjört sjarmakrútt.
Mynd: Elías Björnsson
Athöfnin var haldinn úti í garðinum hjá Báru og Hermanni í dásamlegu veðri.
Mynd: Elías Björnsson
Amma og afi með gullmolana sína
Ég keypti mér þennan fiðrildaskera í Ameríku algjört nauðsyn enda oft búin að sitja sveitt við að klippa út í höndunum þegar ég vildi skreyta með fiðrildum sem gerist alltaf annað slagið.
Ég átti fallegan pappír í ljósblá/grænu og klippti út nokkur fiðrildi sem ég notaði til að skreyta veisluborði (þetta er ekki mynd af veisluborðinu)
Símamynd: Þórgnýr Dýrfjörð
Ég gerði svo nokkrar bollakölur með lemon curd innan í og og rjómasmjörkremi ofan á
Símamynd: Þórgnýr Dýrfjörð
Formin eru með ljósbláum fiðrildum og fékk ég þau í Hagkaup.
Ég útbjó svo merki miða í tölvunni þar sem ég setti nafnið öðru megin og skírnardaginn hinu megin og límdi saman á tréprik og stakk í bollakökurnar.
Þennan snildarskerfa keypti ég líka í Ammeríku og ég notaði hann til að skera út blómamynstrið á bollakökurnar
Símamynd: Þórgnýr Dýrfjörð
Ég prófaði að gera köku pinna í fyrsta skipti og það gekk nú ekkert rosalega vel fyrir sig því að pinnarnir vildu renna í gegn um kúlurnar en þá prófaði ég að henda kúlunum inni í frystinn og þá gekk þetta betur. Ég dýfði þeim svo í hvítt súkkulaði og stráði aðeins bláum sykri yfir. Ég lenti líka í smá vandræðum með það hvernig ég ætti að láta þá standa þar sem ég átti engan stand undir svo ég skar í sundur melónu og stakk þeim í hana. Börnunum fannst þetta að minnsta kosti spennandi nammi.
Mynd: Elías Björnsson
Ég var búin að leita út um allann bæ af fallegum ljósbláum pappír til að gera nafnaveifuna en fann hvergi. Ég leitaði þá bara á netinu af fallegum bakgrunnum sem ég prentaði á pappír og klippti síðan út veifur sem ég setti bókstafina á. Ég notaði svo ljósbelikan borða til að þræða þær upp á. Þetta sést ekki vel á myndinni en ég gleymdi að mynda þetta þegar ég var að búa þær til, já ég veit ég er klaufi.
Mynd: Elías Björnsson
Yndislega fallega fjölskylda Harpa og Haddi með Dagbjörtu Báru og Jónas Ara
kveðja Adda